Starfsfólk
Einar Örn Einarsson
Sérfræðingur í svæfinga- og gjörgæslulækningum
Einar Örn lauk læknanámi við Háskóla Íslands 1996. Árið 1998 var stefnan tekin á Berlín til sérfræðináms í svæfingum og gjörgæslulækningum við Unfallkrankenhaus Berlin.
Eftir þrjú góð ár í Þýskalandi var haldið til Stokkhólms og náminu lokið á Karolinska háskólasjúkrahúsinu 2004. Þar starfaði Einar sem sérfræðingur í þrjú ár áður en hann hóf störf á Landspítala árið 2007 og þar starfar hann enn samhliða starfi á Klíníkinni Ármúla frá 2015.
Einar Örn lauk evrópska sérfræðilæknaprófinu í svæfingum 2004. Hann bætti við sig undirsérgrein í gjörgæslulækningum árið 2010, tveggja ára námi á vegum norrænu svæfinga- og gjörgæslusamtakanna (SSAI).
Einar Örn er virkur í kennslu læknanema og hefur annast kennslu fyrir deildarlækna á svæfingadeild og staðið fyrir námskeiðum hérlendis og erlendis. Þá hefur hann setið í kennslunefnd SSAI undanfarin 8 ár og jafnframt verið fulltrúi í læknaráði Landspítalans frá 2011.