Einkenni frá stoðkerfi
Stoðkerfisvandi er ein algengasta ástæða þess að við leitum til læknis. Öll finnum við einhvern tímann fyrir einkennum frá stoðkerfinu, oftast eru þau álagstengd og eru ekki sjúkleg. Margir þjást þó af sjúkdómum í stoðkerfinu þar sem hægt er að lágmarka einkenni þeirra með réttri meðhöndlun.
Við leggjum áherslu á þverfaglega nálgun og vinnum því náið með sjúkraþjálfurum. Þannig stuðlum við að heildstæðri umgjörð sem tryggir að sjúklingar fái fyrsta flokks þjónustu, hvort sem það snýr að greiningu, meðferð/aðgerð eða eftirfylgd og endurhæfingu.
Á Klínikinni starfa reyndir bæklunarlæknar með sérhæfingu meðal annars í liðskiptum og liðspeglunum auk sérhæfingar í handaraðgerðum. Með skurðstofum og aðstöðu sem uppfyllir ströngustu kröfur á alþjóðlegum mælikvarða getum við boðið þér hágæða og örugga þjónustu.
Slitgigt
Slitgigt er vegna ójafnvægis í niðurbroti og endurbyggingu liðbrjósks, þannig verður liðbrjóskið þynnra og liðurinn fer að mynda beinnabba við liðbrúnir sem skerðir hreyfigetu liðsins. Þegar liðskemmdirnar eru orðnar miklar er oft allt liðbrjósk horfið sem veldur því að beinið er bert, á sama tíma breytist magn og gæði liðvökvans þannig að liðurinn bólgnar upp við álag. Þetta er ástæða þriggja helstu einkenna slitgigtar:
Verkir við álag
Skert hreyfigeta
Stirðleiki
Ástæða þess að sum okkar þróa með sér slitgigt er að mestu óþekkt. Það er þó ljóst að ástæðan er fjölþætt og sjaldan er eingöngu ein ástæða þar að baki. Nokkrir áhættuþættir eru vel þekktir:
Kyn (konur eru í meiri áhættu að þjást af slitgigt en menn)
Aldur (liðbrjóskið eins og aðrir vefir líkamans verða fyrir öldrun og tapa gæðum)
Þyngd (offituvandamál eykur líkur á slitgigt, sérstaklega í hnjám)
Fyrri áverkar (brot eða alvarlegir liðbandaáverkar)
Slitgigt er mjög algeng, þannig er greinanleg slitgigt á röntgenmynd hjá um 5% af einstaklingum á aldrinum 35-54 ára. Slitgigt fer vaxandi með aldri, hlutfall þeirra sem eldri eru en 65 ára og þjást af slitgigt er hátt. Þó er það ekki þannig að allir sem hafa slitbreytingar hafi einkenni af sjúkdómnum.
Svona getum við hjálpað þér
Leiðandi sérfræðingar á sínu sviði
Teymið
Sérfræðingar í fremstu röð og framúrskarandi þjónusta.
Verðskrá
Aðgerðir Bæklunarklíníkurinnar eru flestar framkvæmdar skv. samningi Læknafélags Reykjavíkur við Sjúkratrygginga Íslands en upplýsingar um greiðsluþátttöku sjúklinga er að finna á vef Sjúkratrygginga Íslands: sjukra.is
Aftur á móti er samningur um liðskiptaaðgerðir á milli Klíníkurinnar og Sjúkratrygginga Íslands. Þar er magn aðgerða takmarkað þannig að Klíníkin býður einnig upp á aðgerðir án greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga.
Aðgerð
Verð frá
APS meðferð
110.000
Auka legunótt
75.000
Innritunarviðtal v/liðskipta án greiðsluþáttöku SÍ
21.377
Liðskipti hné án greiðsluþáttöku SÍ
1.237.000
Liðskipti hné, ef á samningi við SÍ
Full greiðsluþátttaka SÍ
Liðskipti mjöðm án greiðsluþáttöku SÍ
1.237.000
Liðskipti mjöðm, ef á samningi við SÍ
Full greiðsluþátttaka SÍ